Hverjir standa að rannsókninni?
Hverjir bera ábyrgð á rannsókninni?
Ábyrgðarmaður samskipta við þátttakendur og persónuauðkenndra gagna:
Valgerður Kristín Eiríksdóttir sálfræðingur, sími 520 2800
Ábyrgðarmaður vísindalegrar framkvæmdar rannsóknarinnar og Lífsýnasafns Íslenskrar erfðagreiningar:
Kári Stefánsson læknir, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar ehf., Sturlugötu 8, 101 Reykjavík.
Hvað er fælni?
Hvert er markmið rannsóknarinnar?
Af hverju sýndarveruleiki?
- Hægt er að kalla fram fælniviðbrögð með sýndarveruleikagleraugum, en slík tækni gerir þátttakendum kleift að lifa sig inn í tölvugerðar aðstæður.
- Í rannsókninni leysa þátttakendur einfalt verkefni í sýndarveruleika þar sem þeir munu sjá köngulær (köngulóafælni) og spreyta sig á göngu yfir fjallagil á hengibrú (lofthræðsla). Verkefnin eru einföld og þátttakendum þykir þau almennt skemmtileg, einnig þeim sem finna fyrir fælni.
- Lífeðlisfræðilegar mælingar verða skráðar á meðan þátttakendur eru í sýndarveruleikanum. Þar á meðal eru hjartarit og húðleiðni (sem eykst við svitamyndun). Þátttakendur munu geta séð valdar niðurstöður að verkefni loknu.
Hverjir geta tekið þátt?
Að svo stöddu er nemendum og starfsfólki Háskólans í Reykjavík, átján ára og eldri, boðið að taka þátt í rannsókninni. Allir úr þessum hópi geta tekið þátt, hvort sem þeir eru haldnir einhverri fælni eða ekki.
Hvað þurfa þátttakendur að gera?
- Undirrita samþykkisyfirlýsingu sem er skilyrði fyrir þátttöku (sjá samþykki)
- Gefa lífsýni með léttu stroki úr kinn til einangrunar erfðaefnis (sársauka- og hættulaust)
- Svara stuttum spurningalista um kvíða og fælni (10 mín.)
- Leysa einfalt verkefni í sýndarveruleika (20 mín. auk tíma í uppsetningu)
- Framkvæmd rannsóknarinnar tekur um 45 mínútur
- Að auki leysa þátttakendur stutt taugasálfræðiverkefni á netinu þegar þeim hentar (20 mín.)
Hvernig lífeðlisfræðilegar mælingar eru gerðar?
Felst einhver áhætta í rannsókninni?
- Líkamleg áhætta við þátttöku er hverfandi. Sýndarveruleikaumhverfið sem rannsóknin byggir á getur þó kallað fram lofthræðslu og hræðslu við kóngulær. Líkamleg einkenni eru fyrst og fremst aukinn hjartsláttur, ör öndun og svitamyndun. Þjálfaðir sálfræðingar sjá um framkvæmd rannsóknarinnar og fylgjast með líðan þátttakenda. Þátttakendur geta stöðvað sýndarveruleikaverkefnið á meðan á því stendur og hætt verkefninu hvenær sem er, niðurstöður þess hluta sýndarveruleikaverkefnisins sem þeir hafa lokið verða þá nýttar eftir því sem hægt er.
- Sýnataka með stroki úr kinn er hættulaus og sársaukalaus.
- Afar lítil áhætta fylgir meðferð persónuupplýsinga. Lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og skilmálum Persónuverndar vegna rannsóknarinnar verður fylgt í hvívetna. Rannsóknaraðilar eru bundnir trúnaði og þagnarskyldu varðandi allar upplýsingar sem þú veitir. Engin persónuauðkenni verða sett á sýni eða upplýsingar sem sendar verða Íslenskri erfðagreiningu heldur verða kennitölur ávallt dulkóðaðar.
Er einhver ávinningur af því að taka þátt?
Hvert er vísindalegt gildi rannsóknarinnar?
Í hverju felst samþykki mitt?
Að auki getur þú undirritað samþykki um varðveislu upplýsinga í lífsýnasafni Íslenskrar erfðagreiningar (lífsýnasafnssamþykki). Undirritun lífsýnasafnssamþykkis er valfrjáls.
Með undirritun lífsýnasafnssamþykkis heimilar þú að:
- Blóðsýni, vefjasýni og erfðaefni sem verður safnað frá þér verði varðveitt undir kóða í Lífsýnasafni Íslenskrar erfðagreiningar. Þar verða líka geymdar upplýsingar sem þú hefur veitt eða hefur verið safnað um þig annars staðar í tengslum við þátttöku þína í rannsókninni.
- Að ofangreind sýni og upplýsingar megi nota til annarra vísindarannsókna sem hlotið hafa umfjöllun og samþykki Vísindasiðanefndar. Þessir aðilar geta þó áskilið að leitað sé eftir nýju samþykki þínu.
Get ég hætt þátttöku í rannsókninni?
Ákveðir þú að hætta í rannsókninni verður öllum lífsýnum og upplýsingum sem frá þér hefur verið safnað vegna rannsóknarinnar eytt og rannsakendum gert ókleif að rekja þau til þín. Afleiddum niðurstöðum, mæliniðurstöðum og öðrum rannsóknargögnum verður ekki eytt, þar sem eyðing þeirra gæti kippt grundvellinum undan rannsókninni og þátttöku annarra, þar sem ómögulegt gæti orðið að túlka niðurstöður sem tengjast öðrum þátttakendum eða jafnvel öllum þátttakendahópnum og ekki væri hægt að staðfesta fengnar niðurstöður.
Ákvörðun um að hætta þáttöku í rannsókninni eða í Lífsýnasafni Íslenskrar erfðagreiningar skal tilkynna á sérstöku eyðublaði sem fæst hjá Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna, Turninum, Kópavogi, sími 520 2800 og hægt er að fá sent í pósti.
Hvar fæ ég frekari upplýsingar?
Upplýsingar um ýmsar rannsóknir Íslenskar erfðagreiningar má finna á www.decode.is.
Upplýsingar um þátttöku í vísindarannsóknum almennt má finna á vefsíðu Vísindasiðanefndar, www.vsn.is.